Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 27. nóvember 2020 10:47
Magnús Már Einarsson
Myndband: Mane og Liverpool komu stuðningsmanni á óvart
Mynd: Getty Images
Liverpool birti í dag fallegt myndband á Twitter sem sýndi frá því þegar stuðningsmaður félagsins fékk óvæntan glaðning á dögunum.

Dave er harður stuðningsmaður Liverpool en hann starfar hjá góðgerðarsamtökum þar í borg.

Í myndbandinu sést þegar Sadio Mane, leikmaður Liverpool, hringir í Dave og ræðir við hann.

Dave fær síðan að fara í heimsókn á Anfield og skora nokkur mörk fyrir framan The Kop á meðan Mane fylgist með.

Í lok myndbandsins fá góðgerðarsamtökin sem Dave starfar fyrir síðan góðan glaðning.



Athugasemdir
banner
banner
banner