Fotbolti.net
27.12.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Jon Dahl Tomasson tekur við Roda (Staðfest)

Jon Dahl Tomasson tekur við Roda (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Fyrrum danski framherjinn Jon Dahl Tomasson hefur tekið við þjálfun Roda í hollensku úrvalsdeildinni.

Tomasson hefur verið að þjálfa Excelsior í hollensku B-deildinni en hann hefur nú gert þriggja og hálfs árs samning við Roda.
Tomasson er 37 ára gamall en hann lagði skóna á hilluna árið 2011 eftir að hafa leikið með Feyenoord.

Hann lék einnig meðal annars með AC Milan, Newcastle, Stuttgart og Villarreal á ferli sínum.

Tomasson á ættir að rekja til Íslands en afi hans fæddist og ólst upp á Íslandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.