27.12.13 - 13:47
Magnús Már Einarsson
Mackay rekinn frá Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Malky Mackay, stjóri Cardiff, hefur verið rekinn úr starfi eftir 3-0 tap liðsins gegn Southampton í gær.
Mikil óvissa hefur verið í kringum framtíð Mackay að undanförnu en samband hans og eigandans Vincent Tan hefur ekki verið gott.
Sterkur orðrómur var um að Mackay yrði rekinn fyrir eða eftir leik Cardiff gegn Liverpool um síðustu helgi.
Mackay stýrði Cardiff þó gegn Southampton í gær en nú hefur hann fengið að taka pokann sinn.
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff sitja nú í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni, stigi frá fallsvæðinu, en liðið mætir Sunderland á morgun.