27.12.15 - 15:00
Arnar Geir Halldórsson
Hannes Sigurðsson í norsku C-deildina (Staðfest)

Hannes í leik með FH árið 2011

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hannes Þ. Sigurðsson er genginn til liðs við norska C-deildarliðið Egersund.
Ásamt því að spila með liðinu mun Hannes gegna stöðu aðstoðarþjálfara en aðalþjálfari liðsins er hinn skoski Maurice Ross sem lék með Hannesi hjá Viking Stavanger á sínum tíma.
Hannes hefur farið víða á atvinnumannaferli sínum en hann hefur leikið í Englandi, Danmörku, Svíþjóð, Rússlandi, Kasakstan, Austurríki og Þýskalandi en lengst af ferli sínum hefur hann verið í Noregi.
Hann á þrettán A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd.
Hannes lék síðast með þýska liðinu Jahn Regensburg í C-deildinni þar í landi.
Egersund var þrem stigum frá því að vinna sér sæti í B-deildinni á síðustu leiktíð.