Fotbolti.net
27.12.21 - 18:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar Ingi í Vålerenga (Staðfest)

Brynjar Ingi Bjarnason.

Brynjar Ingi Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason er orðinn leikmaður Vålerenga. Þetta staðfestir norska félagið á sínum miðlum.
Brynjar var keyptur til ítalska félagsins Lecce í sumar frá uppeldisfélagi sínu KA. Tækifærin hjá Lecce voru af skornum skammti og spilaði miðvörðurinn fleiri landsleiki en keppnisleiki með félagsliði seinni hluta árs.

Vålerenga kaupir Brynjar Inga frá Lecce og er kaupverðið talið nema um 70 milljónum íslenskra króna.

Bodö/Glimt, Hammarby, Malmö og Rosenborg voru einnig orðuð við miðvörðinn.

Brynjar skrifar undir samning við Vålerenga sem gildir til ársins 2025.

Það er nú þegar einn Íslendingur hjá Vålerenga; Viðar Örn Kjartansson. Óvíst er hvort hann verði áfram hjá félaginu sem er staðsett í Osló, höfuðborg Noregs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.