Fotbolti.net
28.01.13 - 16:33
Magnús Már Einarsson

Andri Fannar í Keflavík (Staðfest)

Andri Fannar í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur fengið kantmanninn Andra Fannar Freysson til liðs við sig frá Njarðvík en þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Andri Fannar hefur æft með Keflvíkingum að undanförnu og hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Andri sem er tvítugur hélt til náms síðastliðið haust í Loyola háskólanum í Marylandfylki Bandaríkjunum þar sem hann ætlaði að stunda knattspyrnu samhliða námi.

Það fór þó ekki eins og vonast var til þar sem meisli í hné voru að angra Andra.

Árið 2011 sló Andri í gegn með Njarðvík í 2. deildinni þar sem hann var markahæstur og var kjörinn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Andri er þriðji leikmaðurinn sem Keflvíkingar fá í sínar raðir í janúar en áður höfðu Ray Anthony Jónsson og Halldór Kristinn Halldórsson komið til félagsins.

Heimild: Víkurfréttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.