Fotbolti.net
28.01.14 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Jones til Cardiff - Odemwingie til Stoke (Staðfest)

Kenwyne Jones.

Kenwyne Jones.

Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff hafa fengið liðsstyrk en Kenwyne Jones er kominn til félagsins frá Stoke. Í staðinn hefur Peter Odemwingie farið frá Cardiff til Stoke.
Báðir leikmennirnir hafa ekki spilað jafnmikið og þeir hefðu viljað og því hafa þeir skipt um félag í von um meiri spiltíma.

Odemwingie hefur lítið komið við sögu hjá Cardiff síðan hann kom frá WBA í fyrrasumar.

Fyrir ári síðan gerði hann allt vitlaust á lokadegi félagaskiptagluggans með því að mæta á heimavöll QPR og reyna sjálfur að þrýsta í gegn félagaskiptum þangað.

Jones er er 29 ára og Odemwingie 32 ára en þeir hafa báðir leikið í Englandi í nokkur ár.
Peter Odemwingie.

Peter Odemwingie.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.