Fotbolti.net
28.01.16 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Björk Gunnarsdóttir í HK/Víking (Staðfest)

Björk Gunnarsdóttir í HK/Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
HK/Víkingur hefur fengið liðsstyrk fyrir keppni í 1. deild kvenna í sumar en framherjinn Björk Gunnarsdóttir er kominn til félagsins frá Stjörnunni.

Björk skrifaði undir tveggja ára samning við HK/Víking.
Hin 29 ára gamla Björk hóf meistaraflokksferil sinn með Stjörnunni árið 2001.

Hún lék níu ár með Stjörnunni áður en hún fór í Val í tvö ár og þaðan í Breiðablik.

Björk hefur leikið með öllum landsliðum Íslands, U17, U19 og U 21 auk þess sem hún hefur leikið einn A landsleik.

Á ferlinum er Björk búin að spila 204 leiki og hefur skorað í þeim 98 mörk.

„Ekki er að efa að Björk mun reynast öflugur liðsauki fyrir HK/Víking að ógleymdri þeirri miklu leikreynslu sem hún færir liðinu,\" segir á heimasíðu HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.