Fotbolti.net
28.01.16 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Greg Dyke hættir í sumar (Staðfest)

Greg Dyke hefur verið formaður enska knattspyrnusambandsins síðan 2013.

Greg Dyke hefur verið formaður enska knattspyrnusambandsins síðan 2013.

Canon

Mynd: Getty Images

Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, ætlar að hætta í júní.

Dyke barðist helst fyrir því að meiri fjármunir yrðu veittir til uppbyggingarstarfs og að hert yrði reglur um erlenda leikmenn í enska boltanum.
„Ég er líklega ekki besta manneskjan til að leiða sambandið í framtíðinni og er því búinn að ákveða að halda ekki áfram í sumar,\" sagði Dyke í yfirlýsingu.

David Bernstein, sem var formaður knattspyrnusambandsins á undan Dyke, segist ekki vera hissa á þessari ákvörðun.

„Ég er ekkert sérlega hissa á þessari ákvörðun. Hlutirnir hafa lítið sem ekkert breyst frá komu Dyke.

„Það er alls ekki honum að kenna, það er mjög erfitt að breyta kerfinu að innanfrá og það tekur tíma, ég hef upplifað það sem Dyke er að ganga í gegnum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.