Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. janúar 2020 13:00
Elvar Geir Magnússon
Veitingabás mömmu Brandon Williams fær mikla athygli
Brandon Williams.
Brandon Williams.
Mynd: Getty Images
Brandon Williams, 19 ára bakvörður Manchester United, er mikið fyrir pylsur og steikt egg. Þetta segir móðir leikmannsins, Lisa, sem rekur vetingabás í Harphurey markaðnum í Manchester.

Þetta er ekki matur sem mælt er með fyrir unga íþróttamenn en hefur ekki hindrað Brandon í að vinna sér inn meiri spiltíma hjá United.

Lisa segir að Brandon heimsæki veitingabásinn af og til.

Sjálf er hún gríðarlega stolt af syninum og í básnum hanga uppi myndir af stráknum og blaðaúrklippur.

Veitingastaðurinn hefur verið starfræktur í áratug og hefur vakið aukna athygli og fjölmiðlaumfjöllun með velgengni Brandon.

„Það er sífellt að koma hingað fólk sem hrósar honum. Ég er mjög stolt móðir," segir Lisa.
Athugasemdir
banner
banner