28.01.22 - 19:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Róbert Quental til Torino á láni (Staðfest)

Róbert Quental Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Quental Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítalska úrvalsdeildarfélagið Torino hefur gengið frá félagaskiptum við Leikni í Breiðholti; Róbert Quental Árnason heldur til Ítalíu.
Það er sagt frá því ítölskum fjölmiðlum að Torino sé búið að skrá leikmanninn til leiks.
Hann kemur fyrst um sinn á láni og getur Torino svo keypt hann fyrir ákveðna upphæð.
Fótbolti.net sagði fyrst frá þessum skiptum snemma í janúar. Róbert er sextán ára Leiknismaður sem lék einn keppnisleik með meistaraflokki á síðasta tímabili og á að baki tvo leiki með U17 landsliðinu. Hann var í ÍR á yngra árinu í 4. flokki áður en hann færði sig yfir í Leikni á eldra árinu.
Á síðasta ári höfðu bæði Malmö og Lecce áhuga á leikmanninum, sem komst í fréttirnar fyrir tveimur árum síðan þegar hann skoraði sigurmark Leiknis í Reykjavíkurmótinu - einungis fjórtán ára gamall.
Torino er að skoða fleiri íslenska leikmenn; mikið Íslendingaæði hefur gripið um sig á Ítalíu.