Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 28. janúar 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ungur Íslendingur samningsbundinn Sarpsborg
Hafliði Ísak
Hafliði Ísak
Mynd: Aðsend
Hafliði Ísak Guðjónsson hefur skrifað undir samning við norska félagið Sarpsborg. Hafliði er fjórtán ára gamall.

Hann æfði með ÍR þegar hann var fimm ára gamall en þegar hann varð sex ára fluttist hann með fjölskyldu sinni til Noregs.

Hjá Sarpsborg æfir hann með U14 og U16 liði félagsins.

Hér að neðan má sjá hann leggja upp mark fyrir U14 ára lið Sarpsborg gegn Álasundi.

Hafliði er of ungur til að skrifa undir atvinnumannasamning en samningurinn bindur hann félaginu næstu þrjú ár.

Aðallið Sarpsborg endaði í 8. sæti í Eliteserien á síðasta tímabili. Emil Pálsson er samningsbundinn félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner