Fotbolti.net
28.01.22 - 18:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Vlahovic til Juventus (Staðfest)

Hann er mættur til Tórínó.

Hann er mættur til Tórínó.

Canon

Mynd: EPA

Juventus er búið að staðfesta komu serbneska sóknarmannsins Dusan Vlahovic til félagsins. Hann gekkst undir læknisskoðun í dag og núna er búið að staðfesta skiptin.
Hinn 22 ára gamli Vlahovic gaf það út að hann myndi ekki framlengja samning sinn við Fiorentina. Sá samningur átti að renna út 2023 og ákvað Fiorentina því að selja hann.

Juventus mun borga um 80 milljónir evra fyrir leikmanninn, sem var mjög eftirsóttur. Hann var mikið orðaður við Arsenal, en vildi ekki fara þangað.

Vlahovic er 22 ára í dag. Hann hefur skorað 17 mörk í 21 leik í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili og var næst mesti markaskorari Evrópuboltans 2021 á eftir Robert Lewandowski.

Það verður gaman að fylgjast með samvinnu Vlahovic og Paulo Dybala hjá Juventus og verður athyglisvert að sjá hvort að sóknarmaðurinn nái að halda áfram að raða inn mörkum hjá nýju félagi.

Juventus er í fimmta sæti Serie A, einu stigi frá Meistaradeildarsæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.