lau 28. janúar 2023 22:52
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu það helsta úr sigri Man Utd
Mynd: EPA

Manchester United er komið í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir 3-1 sigur gegn Reading í kvöld.


Það var sannkölluð sambaveisla á Old Trafford þar sem Brassarnir þrír Casemiro, Fred og Antony sáu um mörkin og stoðsendingarnar.

Casemiro kláraði fyrsta mark leiksins með skemmtilegri vippu eftir stungusendingu frá Antony. Hann skoraði annað markið skömmu síðar með góðu skoti utan teigs eftir sendingu frá Fred, sem hafði komið inn af bekknum skömmu áður.

Það var svo Fred sjálfur sem gerði þriðja markið með frábærri hælspyrnu eftir lága fyrirgjöf frá Bruno Fernandes. Fernandes er að vísu ekki brasilískur en hann er þó portúgalskur.

Skömmu áður en Fred skoraði þriðja mark heimamanna lét Andy Carroll, fyrrum leikmaður Liverpool og Newcastle meðal annars, reka sig af velli eftir að hafa fengið tvö gul spjöld með stuttu millibili. Seinna spjaldið fékk hann fyrir hrikalega lélega tæklingu þar sem hann var ótrúlega seinn í manninn.

Sjáðu vippuna hans Casemiro
Casemiro utan teigs
Sjáðu hælspyrnu Fred
Seinna gula spjald Andy Carroll
Sjáðu flotta takta Marcus Rashford
Markið sem var dæmt af
Sjáðu fánamark Reading


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner