28.02.14 - 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Jóhann Helgason í KA (Staðfest)

Jóhann hefur lengi verið mikilvægur hlekkur í liði Grindvíkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Helgason er kominn aftur til uppeldisfélagsins KA eftir átta ára veru í Grindavík.
Jóhann var lánaður til KA sumarið 2012 þar sem hann skoraði 7 mörk í 22 leikjum en á, í heildina, yfir 70 meistaraflokksleiki að baki fyrir liðið.

Jóhann var fyrirliði Grindvíkinga sem höfnuðu í 4. sæti 1. deildar síðasta sumar, einu stigi frá því að komast aftur í Pepsi-deildina.
Jóhann á yfir 100 leiki að baki fyrir Grindvíkinga, langflesta í efstu deild, og á 30. aldursári.

Heimild: ka-sport.is