28.02.14 - 10:10
Magnús Már Einarsson
Keflavík fær reyndan sænskan markvörð (Staðfest)

Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Keflvíkingar hafa samið við sænska markvörðinn Jonas Sandqvist en hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Sanqvist lék 78 leiki með Malmö í sænsku úrvalsdeildinni á árunum 2005-2009 en hann var síðast á mála hjá Örebro í heimalandi sínu.
Á dögunum varð ljóst að Ómar Jóhannsson myndi ekki geta leikið með Keflavík í sumar vegna meiðsla en hann hefur gerst aðstoðarþjálfari hjá Njarðvík. Sandqvist er ætlað að fylla hans skarð.
,,Það er gott mál að við skyldum finna markmann. Nú þarf hann að sýna það að hann sé betri en þeir ungu leikmenn sem við erum með,\" sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga við Fótbolta.net í dag.
,,Þeir vissu að við vorum að skoða markaðinn. Við duttum inn á þennan markvörð, hann var samningslaus og við ákváðum að taka hann. Hann er með mikla reynslu og getur heldur betur hjálpað okkar yngri markmönnum.\"
Sandqvist er 32 ára gamall en hann á einn landsleik að baki með Svíum, árið 2005. Auk Malmö og Örebro þá hefur Sandqvist leikið með Landskrona í Svíþjóð, Atromitos í Grikklandi og Álasund í Noregi.
Þessi stóri og stæðilegi markvörður var einnig á reynslu hjá Middlesbrough á Englandi árið 2011 áður en hann samdi við Álasund.