28.02.20 - 13:46
Magnús Már Einarsson
Djair Parfitt-Williams í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir
Fylkir hefur fengið sóknarmanninn Djair Parfitt-Williams í sínar raðir. Djair hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki en þetta staðfesti Hrafnkell Helgason formaður meistaraflokksráðs í samtali við Fótbolta.net í dag.
Djair var á reynslu hjá Fylki á dögunum en hans besta staða er á kantinum.

Djair Parfitt-Williams er frá Bermúda en hann gekk 14 ára gamall til liðs við West Ham.
Hann lék einn leik með aðalliði félagsins, þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Mauro Zarate í 3-0 sigri á Lusitans í Evrópudeildinni árið 2015. Síðar sama ár var hann í hóp í leik gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Parfitt-Williams er 23 ára gamall en hann hefur undanfarin tvö tímabil spilað með Rudar í úrvalsdeildinni í Slóveníu þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í tuttugu leikjum.