Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 28. febrúar 2021 18:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Glenn Roeder látinn
Mynd: Getty Images
Í dag bárust þau tíðindi að Glenn Roeder, fyrrum stjóri West Ham og Newcastle, hefur yfirgefið þennan heim.

Roeder lést 65 ára eftir að hafa lengi verið með heilaæxli og háð baráttu við það.

Roeder var varnarmaður þegar hann spilaði leikinn og lék hann með Leyton Orient, QPR og Newcastle áður en hann fór í þjálfun. Hann var spilandi þjálfari hjá Gillingham áður en hann tók við hjá West Ham og síðar hjá Newcastle.

„Sorglegt að heyra að Glenn Roeder er látinn. Alvöru fótbolta maður sem átti góðan feril bæði innan og utan vallar. Hvíl í friði," skrifaði Gary Lineker þegar hann sá tíðindin.

„Ég vann með honum í nokkrar leiktíðir. Hann var frábær einstaklingur, vel virtur af leikmönnum og þetta eru sorgleg tíðindi," sagði Gary Neville í útsendingu á Sky Sports.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner