Napoli 2 - 0 Benevento
1-0 Dries Mertens ('34 )
2-0 Matteo Politano ('66 )
Rautt Spjald: Kalidou Koulibaly ('81, Napoli)
1-0 Dries Mertens ('34 )
2-0 Matteo Politano ('66 )
Rautt Spjald: Kalidou Koulibaly ('81, Napoli)
Napoli lagði Benevento í næst síðasta leik dagsins í ítölsku Serie A. Dries Martens og Matteo Politano skoruðu mörk Napoli gegn lærisveinum Filippo Inzaghi.
Napoli datt úr leik gegn Granada í Evrópudeildinni í vikunni en heimamenn voru í engum vandræðum í dag. Benevento hefur ekki unnið leik síðan 6. janúar og gæti sogast niður í alvöru fallbaráttu ef liðið fer ekki að ná í sigra.
Þá gerðu Padova og Cesena markalaust jafntefli í C-deildinni. Emil Hallfreðsson var ekki í leikmannahópi Padova sem vermir toppsæti B-riðils.
Athugasemdir