28.02.22 - 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alex Bergmann staðið sig vel í vetur - Verður lánaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net fyrir helgi. Hann sagði frá því að Alex Bergmann Arnarsson yrði lánaður til annars liðs fyrir tímabilið.
<i>„Hann verður lánaður út. Það sem hefur gert hópinn sterkari hjá okkur eru leikmenn eins og hann, Axel Freyr, Steinar, Stígur og Bjarki. Þeir eru orðnir miklu betri leikmenn en þeir voru í fyrra,"</I> sagði Arnar.

„Það þýðir að hópurinn okkar er sterkur og þegar ég stilli upp í ellefu á móti ellefu á æfingu þá eru það alvöru leikir. Hann þarf leiki og hann þarf mínútur. Hann er búinn að standa sig vel á undirbúningstímabilinu en hann verður lánaður í sumar," sagði Arnar.
Alex Bergmann er sonur Arnars. Hann er 22 ára gamall og hefur leikið með Fram, Njarðvík, ÍR og Víkingi Ólafsvík á sínum ferli. Hann á eftir að spila sinn fyrsta keppnisleik með Víkingi.
Viðtalið við Arnar má sjá í heild sinni hér að neðan.