Fotbolti.net
28.02.22 - 14:02
Elvar Geir Magnússon

Ástbjörn gerði þriggja ára samning við FH (Staðfest) - Oliver og Logi framlengja

Frá fréttamannafundi FH í dag.

Frá fréttamannafundi FH í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Steinke

Hægri bakvörðurinn fjölhæfi Ástbjörn Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH en félagið kaupir hann frá Keflavík.

Ástbjörn er 22 ára en á síðasta tímabili spilaði hann alla 22 leikina með Keflavík í efstu deild og skoraði þrjú mörk. Hann hjálpaði Keflvíkingum að halda sæti sínu sem nýliðar.
FH var í bakvarðarleit eftir að Hörður Ingi Gunnarsson var seldur til Sogndal í síðasta mánuði og samkvæmt heimildum Fótbolta.net kaupir félagið Ástbjörn á 5-6 milljónir króna.

Ástbjörn var kynntur sem leikmaður FH á fréttamannafundi sem stendur yfir í Kaplakrika og birtist viðtal við hann hér á síðunni seinna í dag. Hann er uppalinn KR-ingur en hefur einnig leikið fyrir Gróttu.



Þá hafa þeir Oliver Heiðarsson og Logi Hrafn Róbertsson framlengt samninga sína við FH út 2024.

Oliver er 21 árs sóknarleikmaður sem kom frá Þrótti fyrir síðasta tímabil. Hann lék 12 leiki og skoraði 3 mörk fyrir FH í fyrra.

Logi er sautján ára unglingalandsliðsmaður sem getur leikið sem miðvörður eða miðjumaður og lék ellefu leiki með FH í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.
Ástbjörn í leik með Keflavík.

Ástbjörn í leik með Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi Hrafn Róbertsson.

Logi Hrafn Róbertsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.