28.02.22 - 17:52
Elvar Geir Magnússon
FIFA og UEFA banna rússnesk lið (Staðfest)

Gianni Infantino forseti FIFA og Vladimír Pútín forseti Rússlands. Myndin var tekin 2019.

Mynd: Getty Images

Alþjóða fótboltasambandið FIFA og evrópska sambandið UEFA hafa sett Rússland í bann þar til annað verður ákveðið. Landslið og félagslið frá landinu eru bönnuð frá öllum keppnum.
Alþjóðlega Ólympíunefndin mælti með því í dag íþróttamenn frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi yrðu bannaðir frá alþjóðlegum íþróttakeppnum.
Þetta var ákveðið eftir að Rússland, með stuðningi frá Hvíta-Rússlandi, réðist inn í Úkraínu. Stríð hefur staðið yfir frá því í síðustu viku.
Rússland mun því ekki fá að taka þátt í umspilinu í mars fyrir HM í Katar. Þar átti liðið að mæta Póllandi og sigurliðið að leika gegn Tékklandi eða Svíþjóð um sæti á HM.
Þá mun kvennalandslið Rússlands að óbreyttu ekki fá að taka þátt í EM á Englandi í sumar.
Í apríl á íslenska kvennalandsliðið að spila útileik gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM. Íslenska karlalandsliðið er í riðli með Rússlandi í Þjóðadeildinni og var ráðgert að spila útileik í júní en heimaleik í september.
KSÍ sendi frá sér yfirlýsingu i dag þar sem tilkynnt var að stjórn sambandsins hefði ákveðið að íslensk landslið myndu ekki leika gegn landsliðum frá Rússlandi og ekki spila í Hvíta-Rússlandi.

Áður hafði FIFA verið með tillögu um að Rússland þyrfti að spila komandi leiki undir öðru nafni, án þjóðfána síns og á hlutlausum velli. Það var hinsvegar ekki endanleg ákvörðun og fékk slæm viðbrögð frá aðildarsamböndum.

Mynd: Getty Images

Höfuðstöðvar FIFA.

Mynd: EPA