Fotbolti.net
28.02.22 - 11:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Galdur til FCK (Staðfest) - „Rétti staðurinn fyrir mig"

Galdur á U17 æfingu í haust

Galdur á U17 æfingu í haust

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Galdur Guðmundsson er að ganga í raðir FC Kaupmannahafnar frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Þetta staðfesti danska félagið í dag.

Galdur er fimmtán ára gamall og gengur í raðir FCK í sumar, eftir að hann verður sextán ára í apríl. Hann skrifar undir þriggja ára samning við danska félagið.

Sjá einnig:
„FCK að borga alvöru fjárhæðir fyrir Galdur"
Galdur er kantmaður sem fær mikið hrós frá yfirnjósnara danska félagsins. „Galdur er einn af þeim allra bestu á hans aldri á Norðurlöndunum," segier Mikkel Köhler.

„Við höfum fylgst með honum í langan tíma og hann æfði hjá okkur í nóvember og heillaði. Hann hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks, t.d. í Portúgal núna nýlega. Hann hefur einnig spilað og skorað með U17," bætti Köhler við.

„Þetta er mikill heiður fyrir mig að þeir vilji semja við mig. Ég hef átt þrjú mjög góð ár í Breiðabliki þar sem ég hef þróað minn leik og þroskast. Þetta er lógískt skref á mínum ferli og mér finnst ég vera tilbúinn. Ég er viss um að FCK sé rétti staðurinn fyrir mig. Ég verð að leggja hart að mér og langtímamarkmiðið er að upplifa drauminn sem væri að spila fyrsta leikinn fyrir aðalliðið á Parken," sagði Galdur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.