Jesse Marsch tekur við Leeds United (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Leeds United tilkynnti nú í kvöld að félagið hafi ráðið Bandaríkjamanninn Jesse Marsch sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins en hann tekur við af Marcelo Bielsa sem var sagt upp störfum um helgina.
Marsch sem er 48 ára gamall gerir samning við Leeds fram í júní 2025 sem þó er háður því að hann fái atvinnuleyfi á Englandi. Hann á að stýra liðinu gegn Leicester City um helgina.
Hann er fyrrverandi landsliðsmaður Bandaríkjanna og spilaði með DC United, Chicago Fire og Chivas USA í bandarísku ofurdeildinni.
Eftir að leikmannaferlinum lauk varð hann aðstoðarþjálfari bandaríska landsliðsins og tók svo við Montreal Impact ári 2012.
Þremur árum síðar tók hann við New York Red Bulls þar sem hann var til 2018 er hann varð aðstoðarþjálfari Ralf Rangnick hjá RB Leipzig.
Hann tók svo við þriðja Red Bull Salzburg fyrir tímabilið 2019/2020 þar sem hann vann bæði deild og bikar tvö ár í röð. Eftir það tók hann við RB Leipzig síðasta sumar en hætti þar í desember.
Leeds er í bullandi fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni þegar 12 leikir eru enn eftir af mótinu. Marsch fær það hlutverk að bjarga sætinu.
