Fotbolti.net
28.03.13 - 09:12
Hafliði Breiðfjörð

Rosie Sutton til ÍBV (Staðfest)

Sutton fagnar marki í leik  gegn Sydney 17. nóvember síðastliðinn.

Sutton fagnar marki í leik gegn Sydney 17. nóvember síðastliðinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Kvennalið ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna í sumar því ástralski framherjinn Rosie Sutton er gengin til liðs við félagið.
ÍBV vantaði framherja eftir að ljóst var að Kristín Erna Sigurlásdóttir missir af tímabilinu því hún sleit krossband í hné á dögunum.

Rosie Sutton er 23 ára gömul frá Brisbane í Queensland.

Hún lék með Perth Glory í heimalandi sínu, Ástralíu á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk í 11 leikjum fyrir félagið.

ÍBV leitar nú að frekar liðsstyrk fyrir sumarið en á vef félagsins kemur fram að félagið leitar að varnarmanni og sóknarmanni.

Liðið er þessa stundina í æfingaferð í Valencia á Spáni. Framherjinn Vesna Smiljkovic fór með í ferðina en Shaneka Gordon missir af ferðinni þar sem hún er ekki komin með atvinnu og dvalarleyfi.

Heimild: Vefur ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.