28.03.13 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Stuart Holden til Sheffield Wednesday á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Stuart Holden, miðjumaður Bolton, hefur gengið til liðs við Sheffield Wednesday á láni en lánssamningurinn gildir í einn mánuð.
Þessi 27 ára gamli Bandaríkjamaður er nýbyrjaður að spila aftur með Bolton eftir sextán mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla.
Þessi 27 ára gamli Bandaríkjamaður er nýbyrjaður að spila aftur með Bolton eftir sextán mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla.
Holden snéri aftur gegn Sunderland í enska bikarnum í janúar en hann hefur einungis leikið þrjá leiki síðan þá.
Holden mun nú reyna að hjálpa Sheffield Wednesday í fallbaráttunni í Championship deildinni en liðið er stigi frá falli.
Holden mun nú reyna að hjálpa Sheffield Wednesday í fallbaráttunni í Championship deildinni en liðið er stigi frá falli.
Heimild: Heimasíða Bolton
