Fotbolti.net
28.03.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Arnór Þrastar og Egill Gautur í Hvíta riddarann (Staðfest)

Arnór Þrastarson og Sigurbjartur Sigurjónsson annar af þjálfurum Hvíta Riddarans.

Arnór Þrastarson og Sigurbjartur Sigurjónsson annar af þjálfurum Hvíta Riddarans.

Canon

Mynd: Hvíti riddarinn

Hvíti Riddarinn í 4. deildinni hefur fengið sóknarmennina Arnór Þrastarson og Egil Gaut Steingrímsson til liðs við sig.
Arnór og Egill hafa spilað með Hvíta Riddaranum undanfarnar vikur og hefur Egill verið iðinn við markaskorun í æfingaleikjum til þessa.

Þeir hafa nú skipt yfir í Hvíta Riddarann eftir að hafa spilað með Aftureldingu í 2.deildinni undanfarin ár við góðan orðstír en þeir voru til að mynda markahæstu leikmenn liðsins árið 2011.

Auk þess skiptu þeir Hörður Steinar Harðarson, Haukur Eyþórsson, Trausti Traustason og Marinó Haraldsson yfir í Hvíta Riddarann frá Aftureldingu. Þeir Haukur og Trausti voru á láni frá Aftureldingu síðasta ári en hafa nú skipt alfarið yfir í Hvíta Riddarann.

Þá gengu þeir Arnar Freyr Gestsson og Grétar Óskarsson einnig til liðs við Hvíta Riddarann frá 4.deildar liði Elliða.

,,Þetta er mikill styrkur fyrir Riddarann sem komst í úrslitakeppni 4.deildar síðasta sumar og setja stefnuna á að klára dæmið og fara alla leið í ár,\" segir í fréttatilkynningu frá Hvíta Riddaranum.
Egill Gautur Steingrímsson.

Egill Gautur Steingrímsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.