28.03.14 - 07:00
Elvar Geir Magnússon
Axel Lárusson og Elmar Bragi í HK (Staðfest)

Axel Lárusson er kominn til HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Lárusson er kominn til HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK-ingar hafa verið að bæta leikmönnum við hóp sinn fyrir átökin framundan í 1. deildinni en liðið vann 2. deildina í fyrra.
Axel Lárusson er kominn frá Aftureldingu og Elmar Bragi Einarsson frá Hetti.

„Þetta eru strákar sem okkur líst vel á eftir að hafa séð til þeirra á æfingum og það er engin spurning að þeir styrkja hópinn hjá okkur,\" sagði Þórir Bergsson formaður knattspyrnudeildar við HK-vefinn.
Leikmennirnir gætu mögulega spilað sinn fyrsta leik á laugardag þegar HK tekur á móti Þór frá Akureyri í Lengjubikarnum.
Axel Lárusson er 25 ára gamall bakvörður eða kantmaður sem hefur alla tíð spilað með Aftureldingu og Hvíta riddaranum, b-liði Mosfellinga. Fjögur síðustu árin hefur Axel leikið með Aftureldingu í 2. deildinni, og spilað flestalla leiki liðsins síðustu þrjú sumur.
Elmar Bragi Einarsson er 25 ára gamall miðjumaður frá Seyðisfirði sem lék með meistaraflokki Hugins frá 15 ára aldri og til ársins 2009. Fjögur undanfarin ár hefur hann spilað með Hetti á Egilsstöðum og lék 19 leiki með liðinu í 1. deildinni fyrir tveimur árum, og 21 leik af 22 í 2. deildinni í fyrra.

Heimild: Heimasíða HK