28.03.22 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarni Þór í Fjölni (Staðfest)

Bjarni og þjálfarinn Úlfur Arnar.

Mynd: Fjölnir

Bjarni og þjálfarinn Úlfur Arnar.

Mynd: Fjölnir

Fjölnir hefur samið við Bjarna Þór Hafstein um að leika með félaginu næstu tvö keppnistímabilin.
Bjarni Þór er 22 ára tæknilega sterkur leikmaður sem spilar bæði bakvörð og kant.
Bjarni, sem er uppalinn hjá Breiðablik, kemur til liðsins frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann lék 22 leiki í deild og bikar á síðustu leiktíð. Hann hefu einnig leikið með Augnabliki á sínum ferli.
„Við bjóðum Bjarna hjartanlega velkominn í Voginn!" segir í færslu Fjölnis.
Á næstunni er svo von á því að Killian Colombie verði kynntur sem nýr leikmaður Fjölnis.