Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. mars 2023 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Nítján ára bakvörður Motherwell eftirsóttur
Mynd: Getty Images

Fabrizio Romano greinir frá því að mörg félög hafi áhuga á Max Johnston, 19 ára bakverði Motherwell í Skotlandi.


Johnston er sókndjarfur bakvörður sem getur einnig leikið á hægri kanti og á miðjunni. Hann er lykilmaður í liði Motherwell og rennur út á samningi í sumar.

Romano segir að félög um alla Evrópu vilji fá Johnston í sínar raðir og séu AS Mónakó, Augsburg og Udinese þar fremst í flokki.

Fleiri lið geta þó bæst við kapphlaupið þar sem samningur Johnston rennur út 31. maí. Samningar leikmanna í skoska boltanum renna út mánuði fyrr en aðrir evrópskir samningar sem gilda yfirleitt til 30. júní.

Motherwell er í níunda sæti skosku deildarinnar, með 30 stig eftir 29 umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner