Fotbolti.net
28.04.13 - 09:00
Hafliði Breiðfjörð

Björk Björnsdóttir í Val (Staðfest)

Björk og Laufey sameinast að nýju í Val.

Björk og Laufey sameinast að nýju í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Björk Björnsdóttir er gengin til liðs við Val frá Avaldsnes í Noregi og hefur þegar fengið leikheimild með Hlíðarendafélaginu.
Hjá Val hittir hún fyrir Laufey Björnsdóttur, tvíburasystur sína, sem hefur spilað þar undanfarin ár.

Björk sem er 24 ára gömul hóf feril sinn hjá Fylki sumarið 2007 og spilaði með liðinu 98 leiki þar til hún yfirgaf félagið eftir tímabilið 2011. Hún fékk einnig tækifæri sem útileikmaður hjá félaginu og skoraði tvö mörk í bikarleik gegn Völsungi sumarið 2011, bæði í uppbótartíma.

Hún lék með Avaldsnes í Noregi á síðasta tímabili og þótti standa sig mjög vel. Norska félagið fékk Guðbjörgu Gunnarsdóttur landsliðsmarkvörð til liðs við sig í vetur og nú hefur Björk ákveðið að spila á Íslandi næsta sumar.

Hjá Val mun hún berjast við Þórdísi Maríu Aikman um byrjunarliðsstöðuna. Björk var á bekknum þegar Valur sló Þór/KA út í undanúrslitum Lengjubikarsins á fimmtudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.