Fotbolti.net
28.04.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

HK/Víkingur fær Milana Pesic frá KR (Staðfest)

HK/Víkingur hefur fengið góðan liðsstyrk.

HK/Víkingur hefur fengið góðan liðsstyrk.

Canon

Mynd: Slava Titov

Kvennaboltinn
HK/Víkingur hefur fengið góðan liðsauka fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar því serbneska landsliðskonan Milena Pesic hefur gengið frá félagaskiptum og spilar með liðinu í sumar.
Þetta kom fram á vef HK í gær en Milena Pesic verður 29 ára í næsta mánuði. Hún kom til KR um mitt síðasta sumar og lék seinni hluta tímabilsins með Vesturbæjarliðinu.

Hún hefur leikið 35 A-landsleiki fyrir Serbíu og fjölda leikja með yngri landsliðum þjóðar sinnar. Þá lék hún lengi með besta liði landsins, Masinac, samtals 257 leiki, en einnig með Krka og Rauðu stjörnunni.

Samtals hefur hún sjö sinnum orðið serbneskur meistari með liðum sínum og fjórum sinnum bikarmeistari. Þá á hún að baki 10 tímabil í Meistaradeild Evrópu með Masinac og Krka.

Milena spilar fyrst og fremst á miðjunni en hefur líka af og til leikið sem miðvörður. Hún er væntanleg til landsins fljótlega og verður með strax í fyrsta leik sem er gegn Breiðabliki á Víkingsvellinum 7. maí.

Heimild: Vefur HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.