Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. apríl 2021 11:16
Elvar Geir Magnússon
Gary Martin rekinn frá ÍBV (Staðfest)
Gary Martin hefur yfirgefið ÍBV.
Gary Martin hefur yfirgefið ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur rift samningi við sóknarmanninn Gary Martin en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Ástæðan er agabrot segir í tilkynningunni.

Gary Martin skoraði 11 mörk í 19 leikjum fyrir ÍBV í Lengjudeildinni í fyrra en Eyjamenn enduðu í sjötta sæti.

Tilkynning ÍBV:

Knattspyrnuráð ÍBV hefur rift samningi félagsins við Gary John Martin. Ákvörðun félagsins um riftun samnings má rekja til agabrots leikmannsins sem ekki verður samræmt skuldbindingum hans við félagið.

Virðingarfyllst,
f.h. knattspyrnuráðs,
Daníel Geir Moritz, formaður

Þessar fréttir koma eins og þruma úr heiðskíru lofti en Lengjudeildin fer af stað í næstu viku. Í síðasta mánuði skrifaði Gary Martin undir nýjan samning við ÍBV út tímabilið 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner