28.04.22 - 16:29
Elvar Geir Magnússon
Liverpool tilkynnir um samninginn við Klopp (Staðfest) - „Það er svo mikið að elska á þessum stað"

Peter Krawietz, Jurgen Klopp og Pep Lijnders framlengdu allir til 2026.

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Liverpool og er nú bundinn félaginu til ársins 2026. Liverpool hefur staðfest þetta.
Klopp hafði ýjað að því að hann myndi taka sér hlé frá þjálfun þegar samningur hans myndi renna út 2024 en skipti um skoðun.
Undir stjórn Klopp hefur Liverpool unnið fimm bikara.

„Það eru svo mörg orð sem ég get notað til að lýsa tilfinningum mínum eftir þessa undirskrift. Ég er hástánægður, auðmjúkur, þetta eru forréttindi og spennandi," segir Klopp.
„Það er svo mikið að elska á þessum stað. Ég vissi það áður en ég kom hingað, kynntist því betur þegar ég kom hingað og nú veit ég meira um það en nokkru sinni fyrr."
„Eins og í öllum heilbrigðum samböndum þurfum við að passa saman. Ég þurfti að spyrja mig að þeirri spurningu hvort það væri rétt fyrir Liverpool að ég yrði lengur. Ég komst að niðurstöðu með aðstoðarstjórum mínum þeim Pep Lijnders og Pete Krawietz, niðurstaðan var 'Já'!"
„Það er ferskleiki kringum félagið og það gefur mér orku. Ég er ástfanginn af öllu hér. Nýja AXA æfingasvæðið er frábært heimili fyrir okkur og ég get ekki beðið eftir því að Anfield leikvangurinn verði stækkaður enn frekar."

Jürgen Klopp speaks exclusively after he extended his time with the Reds 🗣
— Liverpool FC (@LFC) April 28, 2022