28.04.22 - 11:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikaela Nótt lánuð upp um deild til Íslandsmeistaranna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikaela Nótt Pétursdóttir, sem er samningsbundin Haukum, hefur verið lánuð frá Lengjudeildarfélaginu til Íslandsmeistara Vals.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu Hauka og sagt að lánið sé tímabundið.

Mikaela er átján ára gömul á að baki 50 leiki með Haukum í meistaraflokki kvenna og 10 leiki með yngri landsliðum, þar af fimm með U19 ára landsliðinu.
„Það er ljóst að við erum að missa öflugan leikmann úr okkar liði skömmu fyrir mót og að sjálfsögðu viljum við aldrei missa leikmenn frá okkur. Á hinn bóginn viljum við ekki standa í vegi fyrir enn frekari framþróun okkar leikmanna og þarna fær Mikaela tækifæri til að æfa og spila með núverandi Íslandsmeisturum,“ segir Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka.
„Við erum með flottan hóp af öflugum Haukastelpum og erum með þrjá sterka útlendinga þannig að ég hef fulla trú á að við mætum sterkar til leiks í Lengjudeildinni,“ segir Halldór enn fremur.
Mikaela var valin efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra. Hún er fjölhæf en er skráð af umboðsskrifstofunni Total Football Agency sem miðvörður.