28.04.22 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Pardew nýr stjóri CSKA Sofia (Staðfest)

Alan Pardew.

Mynd: Getty Images

Alan Pardew.

Mynd: Getty Images
Alan Pardew er mættur aftur í bransann eftir tveggja ára fjarveru en hann hætti sem stjóri hollenska liðsins ADO Den Haag í apríl 2020.
Pardwe, sem hefur stýrt sjö enskum liðum, er tekinn við CSKA Sofia í Búlgaríu en hann hefur verið yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.

Pardew skrifaði undir samning út næsta tímabil.
Pardew er fyrrum stjóri Newcastle en hann hefur ekki starfað í ensku úrvalsdeildinni síðan hann var rekinn frá West Brom árið 2018.
CSKA Sofia er í öðru sæti búlgörsku úrvalsdeildarinnar, tólf stigum frá Ludogorets Razgrad.