Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick hefur engar áhyggjur af miðvarðamálum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick vonast til að vera áfram í þjálfarastólnum hjá Manchester United eftir tímabilið enda hefur liðið verið að ná góðum úrslitum undir hans stjórn.

Rauðu djöflarnir eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á næsta ári þökk sé Carrick eftir að hafa fengið 29 stig úr 13 leikjum með hann við stjórnvölinn.

Carrick fundaði með Sir Jim Ratcliffe fyrir 2-1 sigur gegn Brentford um helgina og er spenntur fyrir framtíð félagsins, þó hann viti ekki hver verður við stjórnvölinn í sumar.

„Ég er ekki að hugsa um sumarið og hvað gerist eftir tímabilið, ég er einbeittur að því að þjálfa liðið," sagði Carrick sem var svo spurður hvort liðinu vantaði nýja miðverði.

„Ég hef engar áhyggjur af miðvörðunum, við erum með frábæra blöndu af alvöru gæðum og bráðefnilegum leikmönnum. Ayden (Heaven) var stórkostlegur í mjög erfiðum leik en ég get ekki tjáð mig um leikmannamarkaðinn í sumar útaf því að ég veit sjálfur ekki hver áformin eru.

„Matthijs (De Ligt) er að vinna hörðum höndum að því að koma til baka úr meiðslum, hann er byrjaður að æfa á grasinu sem eru framfarir en ég veit ekki hvenær hann verður klár í slaginn. Við vonumst til að fá hann aftur sem fyrst.

„Licha (Martínez) hefur verið að missa af leikjum að undanförnu af ýmsum ástæðum, en ég hef engar áhyggjur."


   27.04.2026 22:12
Maguire lofsamar Carrick - „Úrslitin tala sínu máli“

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner