28.05.14 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Belginn Bob Peeters nýr stjóri Charlton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bob Peeters hefur verið ráðinn nýr stjóri Charlton sem hafnaði í 18. sæti Championship-deildarinnar á liðnu tímabili.
Peeters er 40 ára Belgi sem síðast stýrði Waasland-Beveren í heimalandinu og hefur einnig haldið um stjórnartaumana hjá Cercle Brugge og Gent.

Peeters er fyrrum sóknarmaður og lék hann 13 landsleiki á sínum tíma. Hann þekkir til Englands enda lék hann með Millwall í tvö ár milli 2003 og 2005.
Hann tekur við Charlton af landa sínum José Riga sem tók við liðinu í mars og vonaðist eftir því að fá að halda áfram. En eigandi Charlton, Roland Duchatelet sem einnig á Standard Liege, taldi að Peeters væri betri kostur.