Fotbolti.net
28.05.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Federico Macheda til Cardiff (Staðfest)

Macheda fagnar með Cristiano Ronaldo gegn Aston Villa árið 2009.

Macheda fagnar með Cristiano Ronaldo gegn Aston Villa árið 2009.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski framherjinn Federico Macheda hefur skrifað undir þriggja ára samning við Cardiff en hann mun ganga í raðir félagsins þegar samningur hans hjá Manchester United rennur út í sumar.
Macheda skaust fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði mikilvæg sigurmörk fyrir Manchester United tímabilið 2008/2009.

Síðan þá hefur hann átt erfitt uppdráttar hjá United og leikið með Samdporia, QPR, Stuttgart og Doncaster á láni. Þessi 22 ára gamli leikmaður kláraði síðan síðasta tímabil á láni hjá Birmingham.

Macheda mun nú fara til Cardiff en Ole Gunnar Solskjær stjóri liðsins þjálfaði leikmanninn áður í varaliði Manchester United.

,,Þetta er stórt tækifæri fyrir mig og það er Ole Gunnar Solskjær að þakka að ég er hér,\" sagði Macheda eftir að hann skrifaði undir.

Hér að neðan er sigurmark Macheda gegn Aston Villa árið 2009.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.