28.05.14 - 17:30
Daníel Freyr Jónsson
Mauro Zarate til West Ham (Staðfest)

Mauro Zarate er kominn til West Ham.

Mynd: Getty Images

Mauro Zarate er kominn til West Ham.

Mynd: Getty Images
West Ham hefur gengið frá kaupunum á Mauro Zarate frá argentínska félaginu Velez.
Búist hefur við að Zarate gengi í raðir Hamranna undanfarna daga eftir að samningar tókust, en hann hefur nú undirritað þriggja ára samning hjá Lundúnarfélaginu.
Búist hefur við að Zarate gengi í raðir Hamranna undanfarna daga eftir að samningar tókust, en hann hefur nú undirritað þriggja ára samning hjá Lundúnarfélaginu.
Þessi 27 ára gamli framherji lék um stutt skeið með Birmingham í ensku úrvalsdeildinni árið 2008. Hann var markahæsti leikmaður argentínsku deildarinnar sem er nýlokið með 19 mörk.
Zarate lék með Birmingham sem lánsmaður frá Al-Sadd í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Lazio keypti hann þaðan árið 2009 eftir að hann stóð sig vel sem lánsmaður með félaginu.
Zarate lék með Birmingham sem lánsmaður frá Al-Sadd í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Lazio keypti hann þaðan árið 2009 eftir að hann stóð sig vel sem lánsmaður með félaginu.
