Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 28. maí 2020 10:20
Elvar Geir Magnússon
Birkir Már kominn með Slash tattú
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson í Val er mikill rokkari og er hann búinn að fá sér glæsilegt húðflúr á hægri handlegginn.

Um er að ræða mynd af sjálfum Slash, gítarleikara bandarísku rokkhljómsveitarinnar Guns N' Roses.

Húðflúrið má sjá meðfylgjandi mynd sem Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari tók en hann er einnig gríðarlegur aðdáandi Guns N' Roses.

Birkir Már sagði í viðtali við Fótbolta.net árið 2016 að ef hann fengi að vera einhver annar í einn dag myndi hann líklega velja Slash þegar Guns N' Roses voru upp á sitt besta.

Birkir Már var í eldlínunni með Val í 5-1 sigri gegn Keflavík í æfingaleik sem fram fór á Hlíðarenda í gærkvöldi og þar var myndin tekin.

Því er spáð að Valur muni taka þátt í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í ár eftir vonbrigðatímabil í fyrra.

Hér að neðan má sjá fleiri myndir af Birki úr leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner