AGF 1 - 1 Randers
0-1 Simon Piesinger ('36)
1-1 Patrick Mortensen ('92)
0-1 Simon Piesinger ('36)
1-1 Patrick Mortensen ('92)
Danski boltinn fór aftur af stað í dag þar sem AGF og Randers mættust í síðasta leik 24. umferðar efstu deildar.
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Árósa og spilaði fyrstu 68 mínúturnar en var skipt útaf í stöðunni 0-1, eftir gullfallegt mark Simon Piesinger í fyrri hálfleik.
AGF stjórnaði seinni hálfleiknum en náði ekki að jafna fyrr en Patrick Mortensen skoraði í uppbótartíma.
AGF er í þriðja sæti deildarinnar sem stendur, sex stigum fyrir ofan Randers sem er í sjöunda sæti. Danska deildin skiptist vanalega upp í tvo hluta fyrir úrslitakeppnina og er Randers efsta liðið í neðri hlutanum.
Aarthus 0-[1] Randers - Piesinger 36' (Great goal) from r/soccer
Athugasemdir