Róbert Orri Ragnarsson og Adrían Baarregaard Valencia eru búnir að gera þriggja ára samninga út keppnistímabilið 2022. Þeir eru fæddir 2002 og 2003.
Varamarkvörður félagsins Sveinn Óli Guðnason, fæddur 2000, er einnig búinn að skrifa undir þriggja ára samning.
Hinrik Harðarson, fæddur 2004, er þá búinn að skrifa undir tveggja ára samning. Hinrik þykir afar efnilegur og hefur verið á úrtaksæfingum yngri landsliða undanfarið.
Þróttur spilar í 1. deildinni eftir að hafa rétt bjargað sér frá falli í fyrra.
Markvörðurinn Sveinn Óli Guðnason (fæddur 2000) og knd Þróttar hafa undirritað nýjan samning sín á milli sem gildir út keppnistímabilið 2022. Hann er varamarkvörður mfl og á eflaust eftir að skipa enn stærra hlutverk í liði félagsins á næstu árum.👏👏
— Þróttur (@throtturrvk) May 28, 2020
❤️#Hjartaðíreykjavík #Lifi pic.twitter.com/mkUPywWfNs
Knd Þróttar og Hinrik Harðarson (fæddur 2004), hafa undirritað leikmannasamning sem gildir út keppnistímabilið 2021 eða næstu 2 keppnistímabil. Hann hefur verið á úrtaksæfingum yngri landsliða undanfarið og gleðiefni að hann sé nú samningsbundinn félaginu næstu tímabil. #Lifi pic.twitter.com/MTjIfQwDFD
— Þróttur (@throtturrvk) May 28, 2020
Róbert Orri Ragnarsson hefur framlengt leikmannasamning sinn við knattspyrnudeild Þróttar og Adrían Baarregaard Valencia hefur gert nýjan samning við knattspyrnudeild Þróttar. Gilda samningar þeirra út keppnistímabilið 2022 eða næstu þrjú tímabil.👏👏
— Þróttur (@throtturrvk) May 27, 2020
❤️#Hjartaðíreykjavík
👊#Lifi pic.twitter.com/4MzJcSbQpm