Þróttur komst upp í Pepsi Max-deild kvenna í fyrra en sérfræðingar spá því að vera liðsins í efstu deild verði stutt. Í Laugardalnum er þó ekki látið deigan síga og spenna er fyrir tímabilinu.
Nú hefur liðið bætt við sig áströlskum miðjumanni sem kemur frá Canberra United.
Laura Hughes heitir leikmaðurinn en hún mun fagna nítján ára afmæli sínu eftir rúma viku.
Nú hefur liðið bætt við sig áströlskum miðjumanni sem kemur frá Canberra United.
Laura Hughes heitir leikmaðurinn en hún mun fagna nítján ára afmæli sínu eftir rúma viku.
Ástralskir fjölmiðlar segja að Hughes ætli sér að taka eitt tímabil á Íslandi en spila svo á næsta ári í áströlsku úrvalsdeildinni, W-deildinni.
Hér að neðan má sjá viðtal sem tekið var við hana í október síðastliðnum.
Athugasemdir