Leiknir Fáskrúðsfirði er búið að semja við bosníska kantmanninn Salko Jazvin.
Salko er fæddur 1993 og býr yfir reynslu úr efstu deildum bosníska boltans þar sem hann á meðal annars leiki að baki fyrir Zrinjski Mostar og Celik Zenica.
Salko spilar á hægri kanti og getur einnig spilað í fremstu víglínu.
Hann á að hjálpa Leiknismönnum fyrir komandi átök í 1. deild karla eftir að liðið vann 2. deildina í fyrra.
Athugasemdir