lau 28. maí 2022 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Enska uppgjörið - 5. sætið: Arsenal
Það var oft gaman á Emirates í vetur.
Það var oft gaman á Emirates í vetur.
Mynd: EPA
Bukayo Saka er ótrúlega öflugur leikmaður, aðeins 20 ára gamall.
Bukayo Saka er ótrúlega öflugur leikmaður, aðeins 20 ára gamall.
Mynd: EPA
Mikel Arteta stýrði Arsenal í 5. sætið.
Mikel Arteta stýrði Arsenal í 5. sætið.
Mynd: EPA
Martin Ödegaard og Gabriel Martinelli eru mikilvægir.
Martin Ödegaard og Gabriel Martinelli eru mikilvægir.
Mynd: EPA
Aaron Ramsdale kom mörgum á óvart með frammistöðu sinni.
Aaron Ramsdale kom mörgum á óvart með frammistöðu sinni.
Mynd: Getty Images
Gabriel Magalhaes er sterkur í vörninni og skorar einnig sín mörk, fimm talsins á tímabilinu.
Gabriel Magalhaes er sterkur í vörninni og skorar einnig sín mörk, fimm talsins á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Alexandre Lacazette lagði upp sjö mörk.
Alexandre Lacazette lagði upp sjö mörk.
Mynd: Getty Images
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram síðastliðinn sunnudag. Í enska uppgjörinu hefur tímabilið verið gert upp á síðustu dögum á ýmsan máta og er nú farið að síga á seinni hlutann í þeirri umfjöllun. Fyrsta liðið sem fjallað verður um í dag er Arsenal. Þeir náðu að bæta sinn leik talsvert frá síðasta tímabili en það dugði þó ekki til að komast í hina eftirsóttu Meistaradeild.

Tímabilið byrjaði illa og það vægast sagt. Arsenal heimsótti nýliða Brentford í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar þar sem heimamenn höfðu betur 2-0. Í næsta leik kom Chelsea í heimsókn á Emirates og var niðurstaðan þar 0-2 fyrir gestina. Ekki tók við auðveldara verkefni í 3. umferð þegar Arsenal fór í heimsókn á Etihad völlinn til Englandsmeistaranna. Manchester City tók þar Arsenal menn í kennslustund og lokatölur 5-0.

Eftir 3. umferð tók við landsleikjahlé og spurðu sig margir þeirrar spurningar hvort að dagar Mikel Arteta við stjórnvölin hjá Arsenal væru taldir. Hann hafði hins vegar fullt traust stjórnar og kom tímabili Arsenal formlega af stað má segja þegar liðið vann Norwich 1-0 í 4. umferð. Þetta var byrjun á góðum kafla hjá liðinu sem fór í gegnum 8 leiki án taps, uppskeran úr þessum leikjum 20 stig. Virkilega vel gert eftir erfiða byrjun.

Liverpool batt svo enda á þetta góða gengi Arsenal með 4-0 sigri á Anfield. Skytturnar unnu næsta leik 2-0 gegn Newcastle áður en þeir töpuðu tveimur leikjum í röð gegn Manchester United og Everton. Arteta stýrði þeim svo aftur á beinu brautina eftir þetta og unnu þeir þá fjóra leiki sem þarna voru eftir fram að áramótum afgerandi.

Fínum desember mánuði fylgdi slæmur janúar mánuður, árið byrjaði á 1-2 tapi gegn Manchester City áður en Burnley kom í heimsókn á Emirates þar sem niðurstaðan var markalaust jafntefli. Dálítið einkennandi fyrir tímabilð að það vantaði allan stöðugleika, liðið átti alltaf slæma kafla þar sem stigasöfnun var lítil en vann svo marga leiki í röð. Það gerðist einmitt aftur þarna, eftir slæm úrslit í janúar vann liðið fimm leiki í röð áður en kom að 0-2 tapi gegn Liverpool. Arsenal menn sóttu svo góð þrjú stig á Villa Park í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.

Apríl mánuður rann upp og aftur tók við slæmur kafli, þrír tapleikir í röð gegn Crystal Palace, Brighton og Southampton sem opnaði Meistaradeildarbaráttuna upp á gátt. En eins og áður segir, slæmum kafla fylgir góður kafli, svoleiðis var saga Arsenal á tímabilinu. Liðið lagði Chelsea 2-4 á Brúnni, þetta var upphaf af fjögurra leikja sigurhrinu, einnig komu sigrar á Manchester United, West Ham og Leeds. Arsenal menn á þessum tíma með örlögin algjörlega í sínum höndum, ef þeir kláruðu sitt færu þeir í Meistaradeildina.

Helstu keppinautar Arsenal um 4. sætið á lokasprettinum voru grannar þeirra í Tottenham. Þessi lið mættust á Tottenham Hotspur vellinum þann 12. maí þar sem heimamenn unnu 3-0 og opnuðu Meistaradeildarbaráttuna upp á gátt. Arsenal menn voru þó áfram með örlögin í sínum höndum, þeir þurftu bara að vinna síðustu tvo leikina og þá væri sætið í Meistaradeildinni tryggt.

Heimsókn til Newcastle í næst síðasta leiknum gerði það að verkum að Arsenal menn voru komnir í vandræði, 2-0 tapið þar þýddi að Tottenham var nú komið með örlögin í sínar hendur fyrir loka umferðina. Tottenham menn kláruðu sitt verkefni þar örugglega og Evrópudeildarsæti því niðurstaðan hjá Arsenal sem var grátlega nálægt því að komast loksins inni í Meistaradeildina í fyrsta skipti frá því tímabilið 2016/17.

Það eru jákvæð teikn á lofti með Arsenal liðið en það vantaði stöðugleika í þeirra leik í vetur og lokum var það þeim að falli að Meistaradeildarsætið náðist ekki. Það var þó augljós bæting frá síðasta tímabili þar sem liðið hafnaði í 8. sæti með 61 stig. Niðurstaðan núna 5. sæti með 69 stig.

Besti leikmaður Arsenal á tímabilinu:
Hinn 20 ára gamli Bukayo Saka fær þennan titil. Ótrúlegur mikilvægur fyrir þetta lið þrátt fyrir ungan aldur. Var bæði þeirra markahæsti og stoðsendingahæsti maður.

Þessir skoruðu mörkin:
Bukayo Saka: 11 mörk.
Emile Smith Rowe: 10 mörk.
Martin Ödegaard: 7 mörk.
Gabriel Martinelli: 6 mörk.
Gabriel Magalhaes: 5 mörk.
Eddie Nketiah: 5 mörk.
Pierre-Emerick Aubameyang: 4 mörk.
Alexandre Lacazette: 4 mörk.
Thomas Partey: 2 mörk.
Cédric Soares: 1 mark.
Nicolas Pépé: 1 mark.
Rob Holding: 1 mark.
Kieran Tierney: 1 mark.
Nuno Tavares: 1 mark.
Granit Xhaka: 1 mark.

Þessir lögðu upp mörkin:
Bukayo Saka: 7 stoðsendingar.
Alexandre Lacazette: 7 stoðsendingar.
Gabriel Martinelli: 6 stoðsendingar.
Martin Ödegaard: 4 stoðsendingar.
Kieran Tierney: 3 stoðsendingar.
Mohamed Elneny: 2 stoðsendingar.
Nicolas Pépé: 2 stoðsendingar.
Emile Smith Rowe: 2 stoðsendingar.
Granit Xhaka: 2 stoðsendingar.
Cédric Soares: 1 stoðsending.
Pierre-Emerick Aubameyang: 1 stoðsending.
Eddie Nketiah: 1 stoðsending.
Thomas Partey: 1 stoðsending.
Takehiro Tomiyasu: 1 stoðsending.
Nuno Tavares: 1 stoðsending.

Spilaðir leikir:
Bukayo Saka: 38 leikir.
Martin Ödegaard: 36 leikir.
Gabriel Magalhaes: 35 leikir.
Aaron Ramsdale: 34 leikir.
Emile Smith Rowe: 33 leikir.
Benjamin White: 32 leikir.
Alexandre Lacazette: 30 leikir.
Gabriel Martinelli: 29 leikir.
Granit Xhaka: 27 leikir.
Thomas Partey: 24 leikir.
Kieran Tierney: 22 leikir.
Nuno Tavares: 22 leikir.
Cédric Soares: 21 leikur.
Eddie Nketiah: 21 leikur.
Takehiro Tomiyasu: 21 leikur.
Nicolas Pépé: 20 leikir.
Albert Sambi Lokonga: 19 leikir.
Rob Holding: 15 leikir.
Pierre-Emerick Aubameyang: 14 leikir.
Mohamed Elneny: 14 leikir.
Ainsley Maitland-Niles: 8 leikir.
Bernd Leno: 4 leikir.
Folarin Balogun: 2 leikir.
Calum Chambers: 2 leikir.
Sead Kolasinac: 2 leikir.
Pablo Marí: 2 leikir.
Reiss Nelson: 1 leikir.

Hvernig stóð vörnin í vetur?
Ágætlega, Arsenal menn voru með áttundu bestu vörnina sé litið til tölfræðinnar yfir mörk fengin á sig. Liðið fékk á sig 48 mörk sem er þó talsvert meira en þeir fengu á sig á síðustu leiktíð, þá voru mörkin 39. Arsenal er með fimmta besta árangurinn á tímabilinu í að halda markinu hreinu, það gerðu þeir 13 sinnum.

Hvaða leikmaður skoraði hæst í Fantasy Premier league?
Það var að sjálfsögðu hinn frábærri Bukayo Saka. Hann skilaði inn 179 stigum.

Hvernig spáði Fótbolti.net fyrir um gengi Arsenal á tímabilinu?
Fréttaritarar Fótbolta.net spáðu því að Arsenal myndi taka 7. sætið í vetur. Þeir gerðu þó aðeins betur en það og tóku 5. sætið.

Enska uppgjörið
1.
2.
3.
4.
5. Arsenal
6. Manchester United
7. West Ham
8. Leicester
9. Brighton
10. Wolves
11. Newcastle
12. Crystal Palace
13. Brentford
14. Aston Villa
15. Southampton
16. Everton
17. Leeds
18. Burnley
19. Watford
20. Norwich
Athugasemdir
banner
banner
banner