Út af tæknilegum örðugleikum á síðunni kemur sterkasta lið 6. umferðar Bestu deildar kvenna aðeins seinna en gert var ráð fyrir, en hér er það. FH á flesta fulltrúa eftir geggjaðan 2-3 sigur á Breiðabliki á á útivelli.
Aðra umferðina í röð eru Guðni og Hlynur Eiríkssynir þjálfarar umferðarinnar en Aldís Guðlaugsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir eru allar í sterkasta liði umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Natasha Anasi er í sterkasta liðinu í fjórða sinn í sumar en hún átti góðan leik í jafntefli Grindavík/Njarðvík gegn ÍBV. Allison Clark var fremst í flokki hjá ÍBV.
Valur komst á sigurbraut á móti Víkingi sem er að ströggla í upphafi móts. Þar voru Ísabella Sara Tryggvadóttir og Málfríður Anna Eiríksdóttir bestar.
Alda Ólafsdóttir og Taylor Hamlett fundu markaskóna sína í sigri Fram gegn Þórs/KA og þá voru Andrea Mist Pálsdóttir og Telma Steindórsdóttir bestar í sigri gegn Stjörnunnar á Þrótti.