28.06.13 - 19:08
Hafliði Breiðfjörð
Eric Pieters til Stoke City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur gengið frá kaupum á Erik Pieters vinstri bakverði PSV Eindhoven en leikmaðurinn gerði fjögurra ára samning við félagið.
Pieters sem er hollenskur landsliðsmaður hefur verið orðaður við félagið síðan í janúar en þá lenti hann í meiðslum svo ekkert varð af félagaskiptum.
Mark Hughes nýráðinn stjóri Stoke hafði greinilega sama áhuga á Pieters og Tony Pulis og hefur nú gengið frá kaupum fyrir 3 milljónir punda.
Pieters er fyrstu kaup Hughes hjá Stoke síðan hann kom í maí. PSV hafði keypt hann á 2,5 milljónir evra árið 2008. Hann á að baki 17 landsleiki.

Heimild: Sky