28.06.13 - 14:56
Magnús Már Einarsson
Marko Marin til Sevilla á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sevilla hefur fengið kantmanninn Marko Marin á láni frá Chelsea en samningurinn gildir í eitt ár.
Marin kom til Chelsea frá Werder Bremen síðastliðið sumar en gekk illa að festa sig í sessi hjá félaginu.
Marin kom til Chelsea frá Werder Bremen síðastliðið sumar en gekk illa að festa sig í sessi hjá félaginu.
Eftir meiðsli framan af tímabili lék Marin sinn fyrsta leik í byrjunarliði hjá Chelsea gegn QPR í janúar.
Þessi 24 ára gamli leikmaður lék alls 16 leiki með Chelsea á síðasta tímabili en hann mun nú fara til Sevilla í von um að spila meira.
Þessi 24 ára gamli leikmaður lék alls 16 leiki með Chelsea á síðasta tímabili en hann mun nú fara til Sevilla í von um að spila meira.
Heimild: Heimasíða Chelsea
