Fotbolti.net
28.06.14 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð

Daði Bergsson í Val (Staðfest)

Frá undirskriftinni. Daði og Magnús Gylfason þjálfari Vals.

Frá undirskriftinni. Daði og Magnús Gylfason þjálfari Vals.

Canon

Mynd: Valur

Valur tilkynnti rétt í þessu að kantmaðurinn Daði Bergsson sé genginn í raðir félagsins frá NEC í Hollandi en hann gerði þriggja ára samning við sitt nýja félag.
Daði lék með Þrótti áður en hann fór út í atvinnumennsku til N.E.C í Hollandi. Hollensk lið hafa lengi náð i unga efnilega stráka frá liðum á Íslandi og gerðu þeir samnig við Daða í janúar 2013. Daði hefur leikið marga leiki með varaliði NEC og verið nokkrum sinnum verið í hóp hjá aðalliðinu.

Daði lék 31 leik með Þrótti í deild og bikar og á 29 leiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands.

,,Ég er gríðarlega ánægður að vera kominn í Val. Valur er stór og metnaðarfullur klúbbur sem stefnir alltaf á toppinn, þar sem ég tel að ég geti bætt mig verulega sem leikmaður,\" sagði Daði í tilkynningu Vals.

,,Ég er búinn að æfa með liðinu undanfarna viku og líst mjög vel á þjálfarateymið sem og strákana í hópnum en það er mjög létt og skemmtileg stemning í kringum liðið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.